Skjáauglýsingar

Hvernig virkar þetta?

Við aðstoðum í gegnum allt ferlið.

Fjögur einföld skref frá fyrirspurn til birtingar. Þú segir okkur frá þörfinni – við leggjum til birtingar sem henta.

  1. 01

    Fyrirspurn

    Þú sendir okkur stutta fyrirspurn um þörfina: hvað þú vilt kynna, hverjum þú vilt ná til, hvar og hvenær. Þú þarft ekki að vera með allt á hreinu – við hjálpum þér að móta það.

  2. 02

    Tillaga og samkomulag

    Við förum yfir markmiðin með þér, leggjum til staði og tímabil og sendum tilboð. Við aðlögum ef þarf þar til birtingarnar liggja fyrir.

  3. 03

    Afhending efnis

    Þegar samið hefur verið um birtingar sendir þú okkur auglýsingaefnið og við tryggjum að það henti skjánum. Þú þarft ekki að senda efni með fyrstu fyrirspurn.

  4. 04

    Birting

    Auglýsingin fer í loftið á umsömdum stöðum og tímabili.

Efnisskil

Upplýsingar um skjábirtingar.

Skjástærð
1080 × 1920
Lóðrétt snið (9:16)
Auglýsingalengd
8 sek
Mynd eða myndband
Hljóð
Nei
Skjáirnir eru hljóðlausir
Skráarsnið
JPEG/PNG/MP4
H.264, max 50 MB

Efnisleiðbeiningar

  1. 1

    Einföld og skýr skilaboð

    Veldu eitt aðalatriði og leyfðu því að njóta sín.

  2. 2

    Stórt og skýrt

    Skjárinn sést oft úr nokkurri fjarlægð. Notaðu stórt letur og sterka liti.

  3. 3

    Láttu vörumerkið sjást

    Lógóið á heima í auglýsingunni – helst þannig að enginn þurfi að giska á hver er að tala.

  4. 4

    Hljóðlaust

    Skjáirnir eru hljóðlausir, svo efnið þarf að skiljast án hljóðs.

  5. 5

    Sendu efnið tímanlega

    Þegar birtingar liggja fyrir sendir þú okkur efnið. Við förum yfir það og látum vita ef eitthvað má betur fara áður en það fer í loftið.

Algengar spurningar

Spurt og svarað.

Ræðum þína herferð

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.