Skjáauglýsingar

Um okkur

Skjáir sem fanga athygli.

Skjáauglýsingar reka innandyra auglýsinganet sem fangar athygli: auglýsingaskjái í sundlaugum, íþróttahúsum, líkamsræktarstöðvum, tennis- og padelhöllum, golfskálum, golfhermum og á ferðamannastöðum í öllum landshlutum. Skjáirnir eru þar sem fólk staldrar við, mætir reglulega og gefur sér tíma – og þess vegna fanga þeir athygli.

Hvernig við vinnum

Við byrjum á að heyra hvað þú vilt ná fram með auglýsingunni. Síðan hjálpum við þér að velja birtingapakka sem hentar þínum markmiðum, markhópi og markaðsfé. Hvort sem þú vilt ná til fólks á ákveðnum stöðum eða víða um land finnum við lausnina með þér. Þú færð persónulega aðstoð frá fyrstu fyrirspurn þar til auglýsingin fer í birtingu.

Ræðum þína herferð

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.